Tuesday, November 16, 2010

McKeachie - Teaching Tips. Chapter 9. The ABC´s of assigning grades

Hugmyndin um einkunnir sem samskiptatæki, ekki bara mælikvarða er góð. Kannski er til dýpri spurning hérna varðandi mælikvarða og samskipti þeirra. Fyrstu mælikvarðarnir hafa líklega verið notaðir í verslun (vogir) og skattheimtu og þar af leiðandi samskiptum. T.d. Hversu mikið silfur er Hákon Víkingur að gefa mér fyrir ísbjarnarskinnið. Hákon þarf að sýna fram á það með einhverjum hætti.

Ákveðinn hluti af háskólastarfinu er að meta silfrið í nemandanum fyrir hann til þess að auðvelda honum markaðsetningu á sjálfum sér. Þ.e. auðvelda samskipti hans við framhaldsskóla og atvinnurekendur.

Grade inflation er skaðleg aðeins upp að vissu marki. Ef allir aðilar vita eiginleika vogarinnar þá gegna einkunnir samskipta hlutverki sínu. Vandamálið er að sjálfsögðu að með grade inflation þrengist mælisviðið.

No comments:

Post a Comment