Tuesday, November 16, 2010

Hönnunarverkefni - Gerð námskvarða út frá Introduction to Rubrics-Chapter3 eftir Stevens og Levi

Hluti námsmatsins í námskeiðinu sem ég kenni er stórt hönnunarverkefni. Það gildir 20% af lokaeinkunn.
Lýsing á verkefninu  er að finna hér. Námsmatið er eftirfarandi:

1. (20 %) Þarfagreiningu byggða á eiginleikum merkjanna og fyrirmælum forseta lýðveldisins. 1-2 bls.

2. (20 %) Hönnun rásarinnar á pappír. Notið hermun á rásinni til þess að finna væntigildi á DC og AC
rásum. 1-3 bls. (með hermunar niðurstöðum). T.d. er hægt að herma rásina rásina með mismunandi
gildum á beta.

3. (10 %) Áætlun um hvernig hönnunin verður prófuð.

4. (15 %) Layout og byggingu á koparrás.

5. (25%) Hlustun og skilningi forseta lýðveldisins (eða staðgengils hans).

6. (10 %) Prófunarskýrslu. Í henni á að bera hönnunina saman við mæld gildi á rásinni. Einnig á að
koma fram niðurstöður hlustunarprófsins og hvert innihald skeytisins var.

Ég ætla að búa til námskvarða (rubric) fyrir þætti 1-6 út frá kaflanum How to construct a rubric úr bókinni  Introduction to Rubrics eftir Stevens og Levi.

Námskvarðann er að finna HÉR.

Námskvarðinn og gerð hans hjálpaði mér við yfirferðina. Gerð hans hjálpaði mér að hugsa.
Ég skipti námsmatinu áður en ég lærði um matskvarða. Hugmyndin með skiptingu námsmatsins var að fá nemendurna til þess að beita ákveðnu vinnuferli. Þau fóru hins vegar ekki öll eftir því.
Ég mun hafa frágang skýrslu í námsmati og matskvarða í framtíðinni.

No comments:

Post a Comment