Sunday, November 7, 2010

Um fyrirlestur um fyrirlestra

Liveblog um Fyrirlestur um fyrirlestra. Þ.e.a.s. ég mun skrifa hugsanir mínar jafnóðum um fyrirlesturinn og þegar ég horfi á hann. Þetta þekkist meðal annars af pólitískum bloggum þegar horft er á ræður pólitíkusa.

2:58
80% af kennslu í HÍ fer fram sem fyrirlestrar.
3:33
Hæfileikar fólks til þess að flytja fyrirlestra mismunandi. Þetta er performance. Stand-up eins og Friðrik kallar þetta.
3:56
Stór hluti kennaranáms að finna sinn stíl
4:40
Góð kennsla vs. góðir fyrirlestrar. Ég held að fyrirlestrar séu ekki alltaf góð kennsla. Að minnsta kosti ekki í mínu fagi.
5:08
Illa notað animation hjá Ingvari í powerpoint glærunni. Þetta dregur athyglina frá honum án þess að veita nokkrar upplýsingar.
7:34
Notar bók sem stimulus prop. Talar um mögulega truflandi áhrif slíks á fyrirlesturinn. Truflandi eða brjóta upp til þess að halda athygli?
7:57
Relevant fyrir mig. Ekki mætingaskylda en er frjálst hvenær þú kemur inn í tíma.
8:50
Nemendur sem koma seint trufla flæði í fyrirlestrum. Ég þarf að athuga það.
9:17
Fyrirlestur viðkvæmt form
9:30
http://starfsfolk.khi.is/ingvar tjekka á því.
11:14
Vísindalegur grunnur fyrir kennsluaðferðum. Mjög mikilvægt. Minnir mig á vísindalega læknisfræði.
11:45
Policies of effective teachers
13:00
smitandi áhugi
13:30
Hvað eru góðir kennarar. Nemendur dómarar?
Tjáning/framkoma
14:40
Hvernig á að meta kennara
15:57
Miklar væntingar og kröfur af nemendum
Hvaða áhugi?
16:30
Áhugi á efninu. hmmm
17:20
Sannfæra nemendur um að þeir séu bestu nemendurninr sem þeir hafa.
17:33
Áhugi á nemendum
17:45
Áhugi á kennslunni
17:58
Áhugi á árangri
18:18
Nýtni skiptir máli. Nám/tímaeiningu.
19:14
Hann tekur saman atriðin til að telja þau saman.
19:30
Almennur áhugi.
21:49
Taka kennslu upp til þess að leggja mat á fas okkar. Góður punktur. Þetta er performance
23:16
horfa á myndina 3 sinnum.
1) Horfa á hana fyrst einn sjálfur
2) Eftir 2 vikur með einhverjum sem maður treystir til að fá feedback. Glöggt er gests augað.
3) Skoða 0.5-1ári síðar skoða með köldu auga reynslunnar.
26:14
kækir og hikorð. Þarf að athuga þetta.
27:32
Trufla og draga athygli frá efninu. Upptaka dregur úr þessum vandræðum
28:21
Horfa í augun á nemendum og dreifa augnsambandinu yfir hópinn. SNÚA SÉR FRAM!!!!
29:40
Augnsamband undirstrikar öryggi.
34:11
Skýrt skipulag-verkstjórn
35:40
Gjarnir að spyrja spurninga. Varpa fram spurninga sem þeir leggja út af í upphafi. Stöðva kennslu og spyrja. Kemur aftur að umræðuefni okkar Sólveigar.
36:00
Varpa spurningu í lok timans til þess að draga saman eða tengja við annað efni eða glíma við fyrir næsta tíma.
37:00
Góð útskýrari. Gott samhengi. Góð dæmi. dæmi sem nemandi skilur. Tenging við fyrri þekkingu.
Vegvísun um efnið.
38:30
almennilegir einstaklingar. Auðvelt að nálgast. Vinsamlegir
Umhyggja kennara
40:00
slá á létta strengi. Gefa af sér sem skemmtilega tíma.
42:30
fjölbreyttni!
48:01
Glærur fyrir taka hið óvænta frá fyrirlestrinum. Glósur sem nemendur gera í tímum eru lélegar heimildir um það sem kennarinn er að leggja áherslu á. Kennarinn leggi fram grein.
7-10 í tíma. 14 algjört hámark.

Þetta var yfirlit yfir fyrsta tímann. Það sem ég fékk úr því að horfa á þennan tíma var þó nokkuð. Það kemur inn á endurgjöfina sem Sólveig gaf mér eftir að hafa fylgst með fyrirlestri hjá mér..
1) Ég ætla að prófa að taka upp tímana oftar.
2) Ég ætla að æfa mig oftar
3) Ég þarf hugsanlega að stjórna tímanum betur. Koma í veg fyrir ráp nemenda.
4) Snúa mér oftar við þegar ég tala.

Ég skrifa annan póst eftir að ég hef horft á seinni hluta fyrirlesturs Ingvars.

No comments:

Post a Comment