Þröskuldshugtak er áhugavert hugtak. Það er sérstaklega áhugaverður munurinn sem gerður er á milli þröskuldshugtökum og kjarnahugtökum og að eitt einkenna þröskuldshugtaka að þau séu truflandi, ruglandi.
Í framhaldi af því að lesa þessa grein og af umræðunum á Moodle velti ég fyrir mér hver þröskuldshugtökin fyrir kúrsinn sem ég kenni eru. Eins og ég nefndi í umræðunni á netinu er Fourier greining og þessi skynjun og skilningur á venslum tíma og tíðnirúms þröskuldshugtak í rafmagnsverkfræði almennt. Þessi vensl koma víða fyrir, m.a. í rafeindatækni, faginu sem ég kenni.
Önnur þröskuldshugtök fyrir rafeindatækni er að sjálfsögðu rafsvið og segulsvið. Rafsvið og sérstaklega segulsvið eru mjög furðurleg og dularfull hugtök. Ég man þegar ég lærði fyrst um þau í menntaskóla. Það var meðal annars vegna þess að þau voru dularfull og furðuleg sem ég laðaðist að rafmagnsverkfræði (í stað véla- eða byggingarverkfræði[GG1] ).
[GG1]J eitthvað sem hefði hugsanlega flæmt aðra frá? Hefurðu einhverjar hugmyndir um hvernig nýta má þessar hugmyndirum þröskuldshutgtök í kennslunni?
No comments:
Post a Comment