Það fer eftir því hvað felst í hugtakinu upplýsingatækni.
Skilgreining A:
Skilgreinum fyrst upplýsingatækni sem margmiðlunartækni. Þ.e.a.s. notkun á vefnum, powerpoint, myndböndum, o.s.frv.
Samkvæmt þessari skilgreiningu hef ég aðeins notað UGLU. Ég notaði UGLU til þess að setja fyrir heimadæmi, verklegar æfingar og tilkynningar. Ég hef notað powerpoint og skjávarpa endrum og eins í fyrirlestrum. Í hönnunarverkefninu notaði ég hljóðbúta úr óskarsverðlaunamyndum sem ég fann á youtube. Hljóðbútunum breytti ég sjálfur með MATLAB, vinnuhesti verkfræðinga og vísindamanna.
Skilgreining B:
Skilgreinum nú upplýsingatækni víðar sem notkun á forritum almennt. Ég notaði forrit töluvert í minni kennslu.
Ég setti fyrir reikniverkefni sem leysa átti með því að forrita í MATLAB. Í sumum verklegu æfingunum þá námu nemendurnir gögn beint frá mælitækjunum inn í MATLAB. Ég setti einnig fyrir töluvert af dæmum og verkefnum sem leysa átti með hermiforritinu LTspice IV. Hægt er að herma rafeindarásir í LTspice. Nemendur þurftu einnig að nota rásaútlagningarforritin ExpressPCB eða Eagle til þess að leggja út rásirnar á koparplötu sem þau ættu síðan með sýru. (PCB = printed circuit board).
Varðandi framtíðar notkun á upplýsingtækni.
Fyrir næsta námskeið sem ég kenni þá vil ég búa til myndbönd til þess að útskýra rétta notkun á tækjabúnaði í verklegu stofunni. Ég mun hafa myndböndin á UGLU. Ég get búið til online krossapróf til þess að athuga hvort nemendurnir hafa horft á myndböndin. Þetta tíðkast m.a. í USA til þess að fá fólk til þess að lesa yfir öryggisupplýsingar um efnanotkun og dýratilraunir.
No comments:
Post a Comment