Saturday, November 6, 2010

Starfskenning

ATH: Þetta er numið upp úr Word skjali sem ég byrjaði með sem lestrardagbók. Comment frá Guðrúnu Geirsdóttur eru í italics. Ég mun reyna að svara þeim í framtíðarpóstum.

Nemendur læra á því að leysa verkefni, gera tilraunir, smíða hluti. Þ.e. með því að nota þekkinguna. Þetta á jafnt við um tungumál og verkfræði. Í tímum skrifa ég fyrirlesturinn á töfluna með tússi. Ég nota nánast engar powerpoint glærur. Nokkarar ástæður eru fyrir því. Taflan takmarkar óhjákvæmilega hraða yfirferðar í tímanum. Ég held að meðalmaðurinn getur ekki numið upplýsingar miklu hraðar en það tekur hann að skrifa þær niður. Hægt er að stýra athygli nemenda auðveldlega. T.d. að skýra eitthvað ferli með því að teikna það smám saman upp á töfluna. Hægt er að gera svipaða hluti í powerpoint (þ.e. custom animation). Taflan auðveldar samskipti við nemendur. Ef þeir spyrja spurningar er auðvelt að skýra hluti uppi á töflu með því að teikna þá eða skrifa


 [GG1]Áhugavert sjónarhorn – þannig að þú notar töfluna annars vegar til að hægja á yfirferðinni og geta nemendum betra tóm til að velta fyrir sér þekkingunni og hins vegar af því hún er ‘virkari’ samskiptamiðill og gerir þér kleift að bregaðst meira ‘spointat’ við spurningum nemenda



Þessir fyrirlestrar hjá mér eru ekki alltaf mjög virkir tímar. Ég hef reynt að gera hlutina virkari með ýmsum hætti. Stundum tek ég dæmi á töflunni og leysi hluta dæmisins sjálfur og fæ síðan nemendurna með mér í að klára það[GG1] 


 [GG1]Og hefur það ekki gengið vel? Hvernig er reynslan af því?

Ég prófaði í byrjun misserisins að hafa 1 mínútu upprifjun í enda tímans. Ég dreifði A4 blöðum sem á stóð “Hvað skildi ég í tímanum” og “Hvað skildi ég ekki í tímanum”. Undir hvorri setningu var hálf blaðsíða auð. Þetta gaf alveg ágæta raun. Ég fékk ágætt feedback, m.a. um töflutækni. Ég hætti því í einhverju hræðslukasti. Ég er að hugsa um að taka upp á því á [GG1] .


 [GG1]Við hvað varstu hræddur?

Ég hef prófað að láta þau leysa verkefni í seinni hluta fyrirlesturs. Það gekk misvel. Erfitt að búa til góð verkefni[GG1] .


 [GG1]Það væri eflaust ganglegt fyrir þig að greina betur hvaða verkefni eða hvers konar verkefni virka vel og hvers konar síður. Hvað gerir verkefni góð til að leggja fyrir nemendur í þessum námsaðstæðum?


No comments:

Post a Comment