Spurningu varpað á glæru í síðasta tíma. Hvaða námsmat nýti ég mér í námskeiðinu.
1) Heimadæmi: u.þ.b. vikuleg. Gilda 20%.
Nemendur reikna dæmi sem reyna á þekkingu á efninu.
2) Verklegar æfingar sem gilda 20% af lokaeinkunn.
Það nægir að framkvæma þær. Til þess að hljóta próftökurétt þurfa þau hins vegar að ljúka vinnuseðli sem með fylgir. Til þess að geta framkvæmt verklega æfingu þurfa nemendur að skila "prelab" deginum áður. Prelab eru heimadæmi sem tengjast efni verklegu æfingarinnar. Þetta er til þess að nemendur mæti tilbúinir til þess að framkvæma verklegu æfinguna.
3) Hönnunarverkefni sem gildir 20%.
Þetta er verkefni sem er ætlað að fá nemendur til þess að beita hugtökunum til þess að hanna og smíða rafeindarás.
4) Lokapróf.
Gildir 40% af lokapróf. Þetta er fyrst og fremst ætlað að prófa einstaklinginn.
No comments:
Post a Comment